Við Fossvogsdalinn eru margir sem búa í fjölbýlishúsum og eru því ekki með garð til að rækta. Rabbabari er fjölær harðgerð planta og því væri tilvalið að taka smá svæði í dalnum undir rabbabararæktun þar sem íbúar gætu náð sér í rabbabara ár eftir ár.
Fólk sem er ekki með eigin garð fær tækifæri til að ná sér í rabbabara.
Þessi hugmynd er á verkáætlun hjá Kópavogsbæ og fer því ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins Okkar Kópavogur er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation