Komið verði upp skiltum á sögulegum stöðum með upplýsingum og myndum af staðnum frá fyrri tíð. Staðirnir verði aðgengilegir gangandi. Til dæmis um lofskeytastöðina sem var á Rjúpnahæð.
Það er áhugavert að ganga um svæði þar sem saga svæðisins er sett fram á skemmtilegan og upplýsandi hátt. Fyrir íbúa er líka áhugavert að þekka sögu nærumhverfis síns.
Þessi hugmynd komst ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation