Bæta götur, helluleggja gangstéttir, skapa tækifæri fyrir þjónustu- og verslunarrekstur. Framkvæma þegar samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið og gera Auðbrekku að vistgötu.
Auðbrekka og Dalbrekka eru lýti á Kópavogsbæ sem þarf að bæta úr. Nýtt deiliskipulag var samþykkt fyrir alllöngu síðan um að gera Auðbrekku að vistgötu með ýmiss konar verslun og þjónustu. Ganga þarf í þær framkvæmdir, enda hefur þetta svæði setið of lengi á hakanum og fengið að drabbast niður.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Okkar Kópavogur og fer því ekki í kosningu. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins Okkar Kópavogur er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation