Fyrir okkur sem búum við sjávarsíðuna væri gott að bæta aðgengi að fjörunni í Arnarnesvoginum með því að byggja létta göngubrú yfir haftið sem sést á myndinni. Þannig brú myndi einnig skapa svona “ Lónsstemningu” þarna við ósinn með fugla- og mannlífi.
Gerir lífið skemmtilegra og fallegra við þessa tjörn og bætir aðgengi að fjörunni við Arnarnesvoginn
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation