Ég vil óska eftir því að settir verða bekkir þar sem göngustígar enda niðri í fjöru á Arnarnesi
Þar sem ekki virðist vera hægt að setja gögnustíg neðan við hús í Mávanesi, Haukanesi þá væri gaman að geta tillt sér á bekk við enda göngustíganna sem liggja niður að sjó. Þá geta fleiri en íbúar húsa við sjóinn notið útsýnisins.
Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation