Setja gróður eða listaverk á hringtorg við Bessastaðaafleggjara
Hringtorgið er hrátt og kuldalegt með möl og grjóti. Væri mun fallegra að hafa fallegan gróður eða listaverk, eins og hringtorg inni í Garðabæ eru gjarnan.
Þetta hringtorg er til skammar! Þetta er það fyrsta sem tekur á móti manni þegar komið er út á Álftanes. Tilvalið að efna til samkeppni meðal listamanna um að hanna fallegt listaverk á hringtorgið. Fyrir Covid lá straumur af rútum fullum af ferðamönnum sem keyrðu þarna um til að skoða Bessastaði.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation