Móttökustöðvar fyrir sorpflokkun er ábótavant í Garðabæ Þessir gámar sem voru settir til móttöku á plasti og gleri eru með svo litlum opum að það þarf að handtína í þá einingarnar. Eins vantar að það sé flokkaður lífrænn úrgangur (hólf í tunnur )frá heimilum okkar.
Umhverfisvænt að endurnýta það sem hægt er og verndar náttúru landsins
Styð aukna flokkun og mikilvægt að gera okkur kleift að flokka lifrænan úrgangi þ.e að hafa ser tunnu eða hólf f slikt. Eg upplifi að Garðabær sé eftirbátar annarra i flokkunarmálum
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation