Engin lýsing er á göngustígnum sem nær í gegnum Efri-Lundir og mikilvægt að koma upp lýsingu á umræddum göngustíg avo börn og ungmenni geti gengið stiginn yfir vetrartímann án þess að vera í myrkri.😊
Mikið notaður, en mjög dimmur stígur þegar það er myrkur.
Það er engin lýsing á göngustígnum sem nær yfir Efri Lundir og mikilvægt að lýsa þann stíg þar sem hann er mikið notaður af öllum íbúum í Lundahverfinu, bæði ungum sem öldnum.
Það er nauðsynlegt að lýsa göngustíginn - hann er stór hættulegur í myrkri og ekki er þeim haldið við holur og brotið uppúr...
Nauðsynlegt svo bærn geti hjólað og gengið í skólann og einnig til að sjá hálkubletti. Aukin hjólaumferð barna í skólana dregur úr umferðateppum og slysahættum við skólana. Aðstoðun þau að vera sjálfbær.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation