Flýta vorhreinsun lóða um a.m.k. einn mánuð
Nú hefur Garðabær verið með hreinsunarátak í maí mánuði sem er hið besta mál. En reyndin er að trjáklippingar og almenn hreinsun hefst mun fyrr og því væri það vel þegið að bærinn myndi færa þetta fram um einn mánuð svo lauf og trjágreinar lægu ekki margar vikur á lóðamörkum fram á vor.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation