Fá ca. 18-20 gráðu kaldan pott. Þar með er fólk komið með kost sem er mitt á milli ískalda 6-10 gráðu pottsins og venjulegu 38-41 gráðu pottanna. Það er hægt að njóta kosti kælingar lengur og betur í milliköldum potti og þjálfa upp þol. Fæstir þola lengi við í 6-10 gráðu ísköldum potti.
Nota kosti kælingar lengur og betur í milliköldum potti og þjálfa upp þol
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation