Garðabær á að vera með sjóaðsöðu. Heitan pott fyrir neðan sjáland, þar sem er flotbryggja fyrir báta og sjósund. Skýli fyrir báta og aðstæðna til að skifta um föt og fara í sturtu og gufu. Aðstæðna til að sóla sig og jafnvel kaffihús. Garðabær getir verið með bestu sjó aðstöðu á Íslandi. Við eigum að gera þetta vel. Þetta á allt heima saman. Siglingaklúbburinn, sjósund, heitur pottur, kaffihús, gufa, flotbryggja, bátageymsla. Potturinn á Akranesi er flottur en okkar á að vera stærri, 2 hæðir?
Vinsældir eru nú þegar fram út björtustu vonum. Þetta verður Paradís og skapar enn meiri menningu í bænum okkar.
Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation