Koma systkinaforgangi aftur á. Tæknin ætti að geta sagt ykkur að systkinaforgangur er umhverfisvænni, betri fyrir börnin, betri fyrir fjölskyldurnar, betri fyrir leikskólana, betri fyrir leikskólakennarana og betri fyrir vinnumarkaðinn. Prove me wrong.
Klárlega koma aftur með systkinaforgang! Tek undir allt sem Anna Margrét skrifaði. Með því að koma aftur með systkinaforgang þá er það í hag barna og fjölskyldunnar. Svo líka fyrir vinnumarkaðinn.
Er hlynnt systkinaforgangi, allan daginn. Tek undir þau rök sem hafa komið fram. Mikið hagræði fyrir foreldra.
Mjög sammála. Er með eitt barn á leikskóla á Kársnesi þar sem við búum og annað barn á leikskóla á Vatnsenda. Það eru 7.2 km á milli leikskólanna. Þetta eru auka 14,4 km á dag, um 300 km á mánuði sem við keyrum. Það tekur okkur um 40-45 mín að koma börnunum í leikskólanna, HVORA leið, hátt í 1.5 klst á dag í bíl með börnin.
Umhverfi: Án systkinaforgangs þurfum við tvo bíla, fjóra bílstóla og keyra auka 5 km á dag. Barnið: Án systkinaforgangs fá systkinin ekki að vera saman. Annað barnið er í leikskóla lengra í burtu og þarf annað hvort að skipta um skóla að ári eða halda áfram með börnum sem fara í annan leikskóla. Aðlögun gengur verr. Fjölskyldan: Án systkinaforgangs eyða foreldrarnir miklum tíma í vinnu heima eftir að vinnudeginum er lokið eða um helgar. Fleiri starfsdagar, fleiri jólaböll, fleiri sveitaferðir. Meiri streita, meiri kvíði, minni hvíld. Leikskólinn og starfsfólk: Án systkinaforgangs eru leikskólarnur opnir lengur. Aðlögun nýrra barna gengur hægar, lítið systkini þekkir svæðið og kennara stóra systkini síns. Foreldrarnir geta ekki verið í tveimur foreldrafélögum. Atvinnumarkaður: Fleiri starfsdagar, fleiri aðlögunardagar, fleiri uppákomur tengdar leikskólum, kaffi, böll, foreldrafundir. Starfsmaður er þreyttur og finnur fyrir streytu.
Viðbótar álagið á fjölskyldur vegna einkabarns, sem þarf að fara á annan leikskóla en þann sem er í fyrsta vali, er margfalt minna en vegna barns sem kemst ekki á sama leikskóla og eldra systkini, sbr. rök Önnu hérna á undan.
Ég er hjartanlega sammála þessu. Við vorum í því síðustu önn að skutla börnunum okkar í sitthvora áttina og það bætti við um 40 - 50 mín á dag. Þetta hefur bein áhrif á lífsgæði fjölskyldunnar, vinnudagurinn styttist ( Sem hefur áhrif á tekjur ), miklu meira stress, ekki möguleiki að nýta sér þessa 6 tíma styttingu því það fer svo mikill tími að skutla, minni tími sem maður eyðir með börnum heima eftir leikskóla erum bílnum að komast á milli staða. Við erum að reyna koma öðru barni á leikskóla eftir nokkra mánuði, ég viðurkenni að ég kvíði því. Það er ótrúlegt að svona grunnatrið í þjónustu - að systkini geti verið saman sé ekki sjálfgefið. Tæknin er til staðar og þetta ætti að vera auðvelt að útfæra á sanngjarnan hátt. Það myndi bæta þjónustuna, létta á fjölskyldunni, draga úr umferð og umhverfisvænna. Vonandi verður hlustað.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation